Ragnar Kjartansson

 

RAGNAR KJARTANSSON

ALLT ER GOTT AÐ FRÉTTA AF PÓESÍUNNI

16.03. - 22.06.2008

Opið samkvæmt samkomulagi

Sunnudaginn 16. mars 2008 klukkan 11-13 opnar sýning Ragnars Kjartanssonar “Allt er gott að frétta af póesíunni” í Kunstraum Wohnraum á Akureyri

Sýning Ragnars Kjartanssonar í Kunstraum Wohnraum byggist á ljósmyndum sem Ragnar tók á símann sinn í Parísarborg af þremur listakonunum. Þessi verk eru sönnunargögn fyrir ljóðrænu tilverunnar. Þrjú guðdómleg móment úr hversdagsleikanum. Þetta eru heldur ekki hversdagslegar konur á myndunum.

Úr bréfi til vinar:

 "Jæja allt er gott að frétta af póesíunni...Í dag var ég eithvað að skoða myndirnar sem ég tók á ferðalaginu, fann og prentaði út þrjár myndir sem ég tók af Ásdísi, Heklu og Laufey um helgina.... þú sagðir mér að vera duglegur að taka myndir á símann ...  er eithvað að spá í að sýna þær hjá Hlyni Hallssyni und Familie (er með sýningu þar í mars) Finnst þér þetta ekki elegant portrett af listakonum í parís... músurnar þrjár  ... ein í monumental augnablikinu klædd gulum sari í barrokkeyðimörkinni, önnur sofandi í módernismanum, ekki alveg að meika heiminn og sú þriðja alveg kreisí í hvirfilvindinum.... allar eru þær að hugleiða mismunandi krystalkúlur... eru í einhverju trans ástandi"

Ragnar Kjartansson

www.this.is/rassi

 

 

[hallsson] [cv] [blatt blað] [projects] [catalogues] [contact]