|
Sunnudaginn 2. maí 2004, klukkan 11-13 opnar HRUND JÓHANNESDÓTTIR sýningu í KUNSTRAUM WOHNRAUM,
Ásabyggð 2, 600 Akureyri. Þetta er fjórða einkasýnin Hrundar en hún hefur tekið þátt í á annan tug samsýninga. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands 2002. Hrund vinnur með skúlptúra, myndbönd,
innsetningar, gjörninga og hljóðverk svo eitthvað sé nefnt. Í einu myndbandi situr listamaðurinn í lokuðu herbergi með vodkaflösku og kók á klárar þessa drykki á klukkustund. Áhorfandinn getur séð hvað
tímanum líður á jlukku sem hangir á veggnum bak við listamanninn. Í verkinu "Málverk" sem Hrund gerði í Finnlandi drakk hún hálfan líter af mjólk blandaðri með bláum matarlit, ældi svo í skál
og málaði finnska fánann í tilefni þjóðhátíðardags Finna. Eftirminnilegt er einnig verk sem hún sýndi á Grasrótarsýningunni í Nýlistasafninu síðasta haust. Þar var trékofi sem leit út fyrir að vera
sundurskotinn en við nánari athugun mátti sjá að götin 1000 voru eftir borvél. Annars segir Hrund sjálf um verkin sín: "Engar heimspekilehgar útskýringar eða vangaveltur fylgja verkunum mínum,
áhorfandinn upplifir verkin á sínum forsendum, ekki mínum." Það verður því spennandi að sjá hvað hún gerir í heimilisaðstæðunum í KUNSTRAUM WOHNRAUM á Akureyri. Sýningin stendur til 25. júlí og eru
allir velkomnir.
Hrund Jóhannesdóttir
2002 Listaháskóli Íslands, B.A. Myndlista, skúlptúrdeild
1999 Fjölbrautarskólinn í Breiðholti, Stúdentspróf
1996 Iðnskólinn í Hafnarfirði, útskrifaðist af hönnunarbraut
Einkasýiningar:
2001 Sofandi Þyrnirós, Neðanjarðarlestarstöð (Kaisanemi) Helsinki
Ónefnt, Kælirinn, LHÍ
2000 Átrúnaðargoðið, Gallerý Nema Hvað
Samsýningar:
2003 Grasrót, Nýlistasafnið
2002 Vinnustofusýning, Skipholti
Opna galleríið, Menningarnótt
Útskriftarsýning, Listaháskóli Íslands
2001 Hringferðin, Safnaðarheimilið Blönduósi
BITCH, Gula húsið
Go Shopping, búðartaka listnema, IKEA
2000 Jólasýing, Gula húsið
Athygli, tilfinning..., Gula húsið
1998 Unglist, Gallery Geysir
1996 Útskriftarsýning, Iðnskólinn í Hafnarfirði
|